Frosti Halldórsson
    <language>is</language>
Öskudagur
      <description>Frosti var dalmatíuhundur í dag-algjört hvolpakrútt  </description>
Jei!
      <description>Já,kraftaverkin gerast enn-það eru komnar inn nýjar(en samt gamlar) myndir og albúm úr 3 ára afmælinu er á leiðinni  Mamma ritari lofar bót og betrun,nú verða settar myndir inn með reglulegu millibili  Af okkur er annars allt ágætt að frétta, Frosti er rosalega duglegur 3 ára strákur. Hann kann alla stafina og tölustafina og er líka algjört tónlistarséní. Uppáhaldið er ennþá Travis en hann er líka mjög hrifinn af Bítlunum,Coldplay og Zero 7 meðal annars..eðal tónlistarsmekkur hér á ferð!Hann byrjar á eldri deild á leikskólanum í næstu viku og ætlar yfir á Spóaland til Úlfs stóra frænda!Þangað til næst..hafið það gott!! Frosti og co.</description>
Afmælisstrákur!
      <description> Elsku Frosti okkar! Til hamingju með afmælið þitt,stóri 3 ára strákur! Þú ert duglegastur,bestur,skemmtilegastur og flottastur og við elskum þig svoooooooona mikið Mamma og pabbi</description>
Nýjar myndir
      <description>Hæ hó!Skellti inn einu albúmi með myndum frá því að við vorum í sveitinni okkar um daginn. Við fengum súpergott veður og það var svakalega gaman hjá Frosta eins og sjá má af myndunum! </description>
Nýjar myndir!
      <description>Jæja,hann Stígur besti frændi tók sig til og forritaði kerfið fyrir makka upp á nýtt þannig að við komum myndunum loksins inn-takk Stígur! Í albúminu maí og júní eru myndir af Akureyrarferð,17.júní og sitthvað fleira!</description>
Halló halló!
      <description>Halló allir-þið sem kíkið ennþá hérna inn og bíðið eftir nýjum myndum  Við erum í fullu fjöri,en erum búin að eiga í tæknilegum örðugleikum. Fyrst bilaði elsku Canon vélin okkar þegar hún lenti í útistöðum við páskaölsdós um páskana-hún er ansi klístruð og það er ekki hægt að súmma með henni-dálítið erfitt. Núna erum við búin að kaupa nýja vél,svona litla handhæga,til að nota þangað til að við komum hinni í viðgerð,en þá er eitthvað vesen við að koma myndunum inn. Er að vinna í að komast til botns í þessu,en hérna er allavega eitt slideshow með nýjum myndum af litla kút.   Hann er kominn inn á leikskóla og byrjar í ágúst og erum við rosalega glöð með það. Hann verður á sama leikskóla og Úlfur frændi og Rán frænka og m.a.s á sömu deild  og Rán þannig að það verður heldur betur fjör.Mamma ritari er komin í sumarfrí og ætlar að vera voða dugleg að setja inn myndir í sumar-ef hún kemur þeim inn Þangað til næst-hafið það gott í sólinni!Kveðja,Silja,Halldór og Frosti sumarstrákur.</description>
Skemmtilegur fìdus à mömmusìma :-P
      <description>Skemmtilegur fìdus à mömmusìma :-P  </description>
Myndir úr bústaðnum
      <description>Þá erum við komin heim aftur,búin að borða þyngd okkar í súkkulaði og fara tvisvar á dag alla dagana í heita pottinn!Það er komið inn albúm með hellings af skemmtilegum páskamyndum-njótið vel! KveðjaFrosti og co.</description>
Nýjar myndir!
      <description>Halló halló!Það er komið inn eitt nýtt albúm,restin af febrúar og smá í mars. Frosti og mamma eru svo að fara í bústað um páskana (pabbinn þarf því miður að vinna þannig að hann verður eftir í bænum)og þar er planið að vera dugleg að taka myndir. Við segjum bara gleðilega páska og farið varlega í páskaeggjaátið Heyrumst!Kv.Frosti og co.</description>
1 árs afmælisstrákur!
      <description>Elsku Alexander Óli litli frændi er eins árs í dag!Til hamingju með afmælið. Vonandi áttu skemmtilegan afmælisdag og við sjáumst svo hress á morgun!Knús og kossar frá Halldóri,Silju og Frosta  </description>
Nýjar myndir-JEI! 
      <description>  Já já,maður er með myndavélabrosið á hreinu sko Það eru komnar inn fullt af nýjum myndum,vegna fjölda áskorana. Foreldrarnir verða nú eiginlega að fara að taka sig á og setja oftar inn myndir..við lofum bót og betrun! Endilega verið dugleg að skilja eftir kveðju á síðunni,okkur finnst það svo gaman   </description>
Afmælisstrákur
      <description>  Hann Frosti er 2 ára í dag! Tíminn er svo sannarlega fljótur að líða,mömmu og pabba finnst eins og það hafi verið í gær sem þau fengu þennan pínulítla böggul í hendurnar.        Við  héldum upp á afmælið með bolluveislu í gær og það kom sko fullt af fólki! Við viljum þakka öllum fyrir að koma og gera daginn svona skemmtilegan. Frosti þakkar kærlega fyrir sig,gjafirnar slógu rækilega í gegn     P.S ég setti inn eitt myndaalbúm,nóvemberlok og desember fram að jólum. Skelli fleirum inn í kvöld!</description>
smá mblogg bara
      <description>Gömul mynd, en góð. Erum með helling af myndum sem við stefnum á að koma á netið á næstu dögum. Frosti er annars orðinn mjög spenntur fyrir jólunum, hlustar á jólalög og hermir eftir jólasveinunum. Líka búinn að fara í jólaklippinguna.</description>
Nýjar myndir
      <description>                        Halló allir                                                                                                                        Af okkur er allt gott að frétta. Frosti er alltaf jafn flottur og góður strákur. Talar alveg fullt og er rosalega duglegur hjá Sigrúnu dagmömmu. Hann og besti vinur hans,Emil,eru sko alltaf að bralla eitthvað saman og nú er Alexander litli frændi búinn að bætast við í krakkahópinn-það er sko fjör!Við erum búin að vera voðalega ódugleg við að setja inn myndir,en núna voru að koma inn heil 3 albúm, 18,19 og 20 mánaða.Knús og kveðjur úr Suðurásnum að sinni Frosti,mamma og pabbi.     </description>
Myndbönd
      <description>Hæhæ,það er allt gott að frétta af okkur. Við erum búin að koma okkur vel fyrir í Suðurásnum. Gott að fá dáldið meira pláss og svona, ekki amalegt að fá heilt herbergi útaf fyrir sig.Frosti stækkar og stækkar og er alltaf að bæta fleiri orðum í safnið hjá sér. Líka farinn að setja saman setningar og spjallar heilmikið.Við settum inn 4 myndbönd. Getið séð þau með því að velja myndbönd hérna hægra megin. Þau eru á mp4 formatti sem þýðir að það er ekki hægt að nota hvaða spilara sem er til að skoða þetta. Veit að windows media player virkar t.d. ekki en quick time, Real Player og álíka spilarar geta spilað þetta.Endilega skoðið myndböndin og látið okkur vita hvað ykkur finnst.</description>
Loksins nýjar myndir
      <description>Hæ hæ!Af Frosta er allt gott að frétta. Hann fór í skoðun í vikunni og er orðinn hvorki meira né minna en 15,5 kíló og 87 cm! Hann fékk sprautu hjá lækninum og var alveg ósköp duglegur og góður.Hann er farinn að tala alveg helling og bætir við sig nýjum orðum nánast daglega. Mamma ritari ætlar að taka sér tíma bráðum og setja inn orðin hans hérna á síðuna.Núna erum við að flytja upp í Suðurásinn til ömmu og afa þar. Frosti fær sitt eigið herbergi og hefur heilan garð til að leika sér í! Það er sko ekki leiðinlegt Settum inn myndirnar frá því að Frosti fékk traktorinn sinn,svo lofum við því að vera duglegri að setja inn myndir!Knús og kossar frá Frosta og co.</description>
Myndaalbúmunum læst
      <description>Halló allir.Við ákváðum að læsa myndaalbúmunum,allavega í bili,vegna frétta um ljóta menn úti í heimi sem eru að fara inn á barnasíður. Lykilorðið er uppáhalds heimilistækið hans Frosta,með stórum fyrsta staf. Smá vísbending,það er ekki þvottavél. Ef þið vitið það ekki þá er nú lítið mál að senda okkur póst og við sendum ykkur til baka </description>
Nýjar myndir
      <description>Jæja, þá er sumarið komið og loksins komnar inn nýjar myndir. 2 ný myndaalbúm og yfir 400 myndir að skoða. Fyrra myndaalbúmið er í 16. mánuði og seinna í 17. mánuði. Þið getið líka smellt á myndina fyrir ofan til að komast í fyrra albúmið og myndina fyrir neðan til að komast í það seinna.Annars er ýmislegt að frétta. Ég er byrjaður hjá dagmömmu. Hún heitir Sigrún og er í Grafarvoginum. Það er alveg rosalega gaman, hún er frábær og krakkarnir skemmtilegir. Ég apa líka allt eftir þeim og læri nokkur ný orð á hverjum degi. Bráðum verð ég farinn að tala fullt. Er þegar byrjaður að spjalla helling en það er svona misjafnt hvað fólk skilur hvað ég er að meina.Mamma og pabbi fóru til útlanda í 5 daga. Ég saknaði þeirra alveg en það var samt gaman að vera með ömmunum mínum og öfum á meðan. Þau komu til baka með fullt af gjöfum handa mér. Svo eru þau líka trúlofuð. Það var nú kominn tími til segi ég nú bara...Ég var lasinn í síðustu viku, það var sko ekkert gaman. Þurfti að hanga heima með pabba allan daginn og gat ekkert leikið með krökkunum. Óþolinmæðin var líka farin að segja til sín, alltaf þegar við komum fram á morgnanna rétti ég pabba skóna sína og benti á útidyrnar og sagði "krakkar". Samt þurfti ég að hanga heima. Ekki sanngjarnt.Síðustu helgi fórum ég með mömmu og pabba, afa og ömmu úr Suðurásnum og frændum og frænkum í ferðalag. Við fórum að skoða Gullfoss og Geysi og dýragarðinn í Slakka. Það var stuð. Getið séð það á myndunum.Endilega verið dugleg að senda mér kveðju hérna, mér finnst svo gaman að lesa það. Líka hvað þið hafið að segja um myndirnar mínar.Kveðja,Frosti sumarstrákur</description>
Loksins loksins!
      <description>Það eru komnar nýjar myndir,undir 14.,15. og 16.mánuði.Við fjölskyldan erum búin að vera heilmikið á ferð og flugi undanfarið. Vorum á Hótel Heklu um páskana og höfðum það gott,hittum skemmtilegt fólk og borðuðum góðan mat-og páskaegg! Síðan höfum við verið með annan fótinn í sveitinni þar sem mútta er búin að vera að vinna. Pabbi greyið keyrir á milli-en Frosta finnst rosalega gaman að vera í sveitinni,hlaupa um gangana,fara í fótbolta í stóra fundarsalnum og auðvitað vera úti að leika við hundana. Hann er ennþá mjög hrifinn af þvottavélum,ryksugum og kústum,og labbaði um allt hótel um daginn og sópaði með litlum kústi-gerði fínt fyrir ömmu Sigrúnu Frosti þroskast mjög hratt þessa dagana. Hann skilur ALLT sem maður segir við hann,þótt hann tali nú ekkert voðalega mikið sjálfur. Enda til hvers að tala þegar maður getur bara bent og sagt uh,uh! og það skilst svo maður fær það sem maður vill?  Ef hann er spurður: ,,Hver elskar þig?" svarar hann oftast: ,,Mamma,pabbi".Sjálfstæðisbaráttan er aðeins byrjuð,það er mikið sport að borða sjálfur þessa dagana,hann verður alltaf að hafa sinn eigin gaffal. Hann vill líka bursta sig sjálfur og labba sjálfur upp og niður stiga. Hann tók upp á því um daginn að hætta að vilja snuð-þessi líka duddukallinn. Bara allt í einu hafði hann engan áhuga á duddunni sinni og henti henni jafnóðum út úr sér. En það er bara fínt,þá þurfa foreldrarnir ekki að hafa áhyggjur af því að duddan skekki tennurnar.Síðan fórum við í fyrsta skipti öll saman í Húsdýragarðinn um daginn og það var sko fjör! Frosta leist vel á selina,hann hélt því reyndar fram að þeir væru í baði. Svo klappaði hann kusu og hestinum,sem reyndi að éta hann,og var voðalega hissa á hananum sem galaði! Svo sáum við líka litla kiðlinga,en Frosti sagði bara tiss-hélt þeir væru kisur!Svo ætlum við foreldrarnir að skella okkur til London í fimm daga bráðlega og verður það sko lengsti tíminn sem við höfum verið frá litla kút. En hann verður í góðu yfirlæti hjá ömmum sínum og öfum á meðan,svo við höfum nú engar áhyggjur af því.Á morgun ætlum við svo að bruna aftur í sveitina-Hinrik var að fá pínulítinn hvolp og við verðum nú aðeins að skoða hann! Mamma ætlar að vinna og svo komum við aftur á sunnudaginn.Endilega verið dugleg að kommenta á myndirnar og svona, mömmu og pabba finnst svo gaman að lesa hverjir eru að skoða síðuna..þau eru nefnilega dálítið montin af stráknum sínum sjáiði til </description>
Sæti í sveitinni
      <description>Sæti í sveitinni</description>
Sæt vídeó
      <description>Það koma inn myndir af páskunum og fleiru í kvöld,en hérna eru 2 sæt myndbönd sem ég var að taka af Frosta krútta Frosti að dansaFrosti að ryksuga og frekjast smá við pabba sinn</description>
Nýjar myndir og smá fréttir
      <description>Sparisvipurinn?Það eru komin inn 2 ný albúm með fullt af flottum myndum,endilega kíkiði og svo má alveg kommenta líka Það er bara allt ágætt að frétta af Frosta litla,hann er alltaf jafn duglegur og góður strákur. Hann er aðeins farinn að tala meira,bablar helling og segir mamma og pabba,datt,heitt,nammi,takk,batt(bað) og svo hermir hann einstaklega vel eftir apa,bíl og ryksugu! Hann hefur einmitt mikinn áhuga á þeim,ásamt uppþvottavélum.Bíllinn segir burrOg ryksugan segir húúúúÞað er reyndar búið að ákveða að setja rör í eyrun hans,því hann er búinn að fá svo oft eyrnabólgur og alltaf situr vökvi eftir fyrir innan hljóðhimnurnar,og svo á að tékka á nefkirtlunum í leiðinni. Aðgerðin verður 11.apríl. Við vonum bara að hann verði búinn að jafna sig 14.apríl,en þá ætla Elva frænka og Stígur frændi að gifta sig!</description>
Ný klipping!
      <description>Jæja þá hefur draumur afa Hauks ræst,það er búið að klippa strákinn.Hérna koma myndir fyrir ömmu og afa úti á Kanarí:Fyrir:Eftir: Mér finnst eins og hann hafi elst um heilt ár við þessa klippingu,orðinn svo stór strákurinn!Og svo ein mynd af Frosta í húsverkunum,bara fyrir ömmu Jóhönnu á Kanarí </description>
Afmælismyndir!
      <description>    Já,litli kúturinn okkar er bara orðinn 1 árs stór strákur. Mikið  svakalega sem tíminn er fljótur að líða. Afmælisveislan var alveg  rosalega skemmtilegt,fullt af fólki kom og það var svo gaman að sjá  ykkur öll. Frosti þakkar kærlega fyrir allar fínu gjafirnar sem hann  fékk       Það eru komnar inn myndir úr fyrsta afmælinu hans Frosta. Þetta eru  frekar fáar myndir,þannig að ef einhver á myndir sem við megum fá þá  endilega hafa samband.    Kv.myndaóða mamman     Uppfært: Komið inn annað albúm af sæta stráknum.      </description>
Lítill frændi fæddur!
      <description>  Í gærkvöldi fæddist lítill frændi. Hann vóg 13 merkur og var 49 cm  langur og alveg ótrúlega fallegur eins og sjá má. Velkominn í heiminn  litli snúður og til hamingju elsku Ásdís og Kári!    Þannig að nú er Frosti aldeilis orðinn stór,eins árs OG stóri frændi. Myndir úr afmælinu koma á morgun   </description>
Halló halló
      <description>      Maður er sko alveg með myndavélabrosið á hreinu      Það er allt gott að frétta af Frosta, hann er reyndar búinn að vera  mikið kvefaður í janúar. Fékk í kinnholurnar og svoleiðis leiðindi.  Núna er hann kominn aftur með kvef-þessi janúarmánuður ætlar að verða  pestamánuðurinn mikli! Vonum bara að febrúar verði skárri. Þá á hann  náttúrulega afmæli! Við ætlum að halda stóra og flotta veislu,vonandi  komast sem flestir! Þið fáið boð á næstu dögum...    Annars er hann bara afskaplega glaðlynt og gott barn,eins og sést á myndunum,aldrei langt í brosið  hjá snúllanum. Svo er hann farinn að labba alveg eins og hann hafi  aldrei gert annað!      Það eru komin inn 4 ný albúm með alveg skrilljón myndum.      Kveðja frá Frosta og co.            </description>
Frosti stóri strákur
      <description>     Frosti tók nokkur skref alveg sjálfur í gærkvöldi! :)  Hann fór líka í skoðun í gær og er orðin 12,16 kíló og 77,5 cm langur.  </description>
Komin 3 ný albúm!
      <description>Með 298 myndum,hvorki meira né minna! Vonandi bætir þetta eitthvað upp  myndaleysið á meðan tölvan var í viðgerð. Albúmin eru undir 8.,9. og  10.mánuðum.        Það er annars ýmislegt að frétta af honum Frosta:   Hann er orðinn 10 mánaða,eldhress kútur.   8 tennur komnar,4 uppi og 4 niðri.   Hann er farinn að labba með og skríða eins og  herforingi,á mjög sérstakan hátt. Setur annan fótinn fyrir sig og hinn  hálfpartinn dregur hann með.  Hann er hættur hjá Jóu dagmömmu,núna er hann heima á daginn með múttu sinni.  Hann bablar og bablar,drekkur úr röri og blæs í það til að ,,bubbla"..mikið sport þessa dagana.  Fikt skeiðið er að koma sterkt inn,allt sem er  bannað er extra spennandi: Skúffur,skápar,snúrur og allt þannig. Hann  skilur alveg þegar maður bannar honum,en það er nú ekki alltaf sem hann  hlýðir. Setur stundum á sig alveg ótrúlegt prakkaraglott og heldur  áfram að skottast.    Ég  var einmitt að skoða ,,gamlar" myndir af honum og það er ótrúlegt,mér  finnst svo endalaust langt síðan að hann var svona lítill! En það eru  örfáir mánuðir síðan. Það er svo margt búið að gerast á þeim tíma og  hann þroskast svo hratt litli snúllinn. Hann bræðir mig enda oft á dag,hann  er svo skemmtilegur :)      Þarna sat hann löngum stundum grafkyrr og dundaði  sér,náði ekki einu sinni niður í gólf..núna spólar hann um allt og maður má passa sig að verða ekki fyrir  honum :)      Svo styttist nú í fyrstu jólin hans! Hann gerir  sér náttúrulega enga grein fyrir því en við foreldrarnir erum mjög  spennt fyrir hans hönd :)  Læt þetta duga í bili...það verður styttra á milli færslna næst :)    Kv.Silja mamma.    </description>
Vibbí skibbí!
      <description>Tölvan er loksins komin úr viðgerð..mikil hamingja hér á bæ! Það koma myndir-og fullt af þeim-í kvöld   </description>
Fréttir og myndir
      <description>    Halló halló,    það er aldeilis! Núna er ég bara orðinn rosa stór strákur og byrjaður  hjá dagmömmu. Hún heitir Jóa og passaði Úlf frænda áður en hann byrjaði  á leikskóla. Mér finnst bara gaman að hitta krakkana og leika við þá.    Ég er líka kominn með tvær nýjar tennur. Báðar augntennurnar uppi eru komnar í gegn. Eflaust einhverjar fleiri á leiðinni.    Berti frændi minn er búinn að vera í heimsókn frá Danmörku, fyrst hann  og Eva, dóttir hans, og svo komu líka Inga, mamma Evu, og Audrius  bróðir hennar. Þau eru skemmtileg.    Svo eignaðist ég nýja frænku þegar Elva frænka og Stígur frændi  eignuðust dóttur. Hún heitir Rán og er ofsalega sæt. Úlfur bara orðinn  stóri bróðir og ég ekki lengur minnstur í fjölskyldunni.    Margt búið að gerast en hvað er að frétta af ykkur?    Kveðja,  Frosti  </description>
Nammi lumma!
      <description>Nammi lumma!</description>
Horft út um gluggann
      <description>Horft út um gluggann</description>
Lítil frænka komin í heiminn!
      <description>Lítil frænka komin í heiminn!</description>
Svo falleg! Fæddist kl.10.49, 13 merkur og 51 cm :)
      <description>Svo falleg! Fæddist kl.10.49, 13 merkur og 51 cm :)</description>
Steinsofandi snúdur
      <description>Steinsofandi snúdur</description>
Áfram Ísland!
      <description>    Halló!    Sjáiði hvað ég á fínan fána. Þýðir ekkert annað en að vera þjóðlegur  þegar vel gengur. Fótboltastrákarnir unnu og Magni er bestur. Og svona.  Svo eru komnar nýjar myndir. Ég fór í heimsókn í Suðurásinn og hitti  Nadíu Sól og Huldu og Ásdísi og Kára og auðvitað ömmu og afa. Svo fékk  ég líka mjólkurkex og fór í bað og allt bara.    Bið að heilsa.  Kveðja,  Frosti.  </description>
Úbbsí
      <description>    Pabbi klaufi gleymdi einni möppu af myndum þegar hann var að setja nýju  myndirnar inn í albúmið. Hann er núna búinn að bæta úr því og setja inn  annað myndaalbúm með 25 myndum í viðbót af mér að borða gulrætur og  svona. Skoðið þær endilega líka og segið mér hvað ykkur finnst.    Kveðja,  Frosti  </description>
Fyrsta klippingin
      <description>    Halló halló!    Það er nú ýmislegt búið að gerast síðan síðast. Ég fór í læknisskoðun  og var þá orðinn 10 kg og 850 grömm og 73 cm. Ég fékk líka sprautu í  rassinn, það var ekki gott. Ég var samt ekki lengi að jafna mig á henni  enda svo stór og duglegur.    Svo erum við öll búin að vera lasin. Mamma og pabbi fengu leiðinlega  flensu og ég er búinn að vera kvefaður síðustu daga og með einhverja  smá pest. Ég brosi samt alltaf og reyni að vera hress. Þýðir ekkert  annað.    Ég sá líka Magna í sjónvarpinu að syngja. Mér fannst hann langbestur og  byrjaði strax að syngja með honum og dansa á fullu. Ef mamma og pabbi  myndu leyfa mér að vaka þá myndi ég sko þokkalega horfa á hann í nótt  og kjósa hann. Ég verð bara að horfa á endursýninguna og vona að allir  hinir verði duglegir að kjósa hann. Áfram Magni!    Í gær fór ég í fyrstu klippinguna mína. Mamma rakaði fullt af hári af  hausnum á mér með skrýtnu græjunni sinni. Núna er ég næstum alveg  snoðaður.    Þið getið skoðað myndir af þessu, það eru komnar 150 nýjar myndir í myndaalbúmið mitt.    Segið mér endilega hvað er að frétta af ykkur.    Kveðja,  Frosti  </description>
Tönnslukall
      <description>    Það er komin upp önnur vinnukona!  Af því tilefni fékk ég  tannbursta og þótt það hafi verið skrítið að bursta fyrst finnst mér  það mjög gott núna. Bursta meira að segja sjálfur stundum! Ég er ennþá  mjög pirraður í gómnum,svo það verður líklega ekki langt í næstu tönn.   Svo er ég farinn að fá mjólkurkex að naga einstaka sinnum. Það er samt  varla að mamma þori að gefa mér svoleiðis því ég er svo voðalega  duglegur að bíta að oft næ ég stórum bita úr kexinu áður en það  blotnar! Mamma vill nú ekki að það fari að standa í mér svo hún er  frekar óróleg með þetta. Svo fékk ég soðna kartöflu með gulrótarmauki í  kvöldmat í gær og það fannst mér algjört nammi. Ég ljóma líka allur  þegar ég sé grautarskál nálægt mér, þá veit ég sko alveg hvað er að  gerast!   Pabbi er búinn í fæðingarorlofinu sínu og farinn að vinna í löndun.  Hann var að vinna rosalega lengi þrjá daga í röð og ég sá hann lítið.  Þegar hann kom svo heim í dag var ég búinn að vera mjög pirraður, enda  slappur í maganum og klæjaði líka í góminn. En þegar ég sá pabba varð  ég svo glaður og lék á alls oddi. Greinilega búinn að sakna pabba,enda  er hann bestur. Við erum samt voða ánægð með þessa nýju vinnu því pabbi  fær svo góð frí inn á milli sem hann getur notað til að dúllast með  okkur mömmu   Núna í augnablikinu er ég uppi í Suðurás með pabba. Mamma er ein heima  því hún er lasin, svo hún ákvað að ritarast smá og skella inn nýjum  myndum. Þær eru mjög flottar þótt ég segi sjálfur frá  Endilega kíkið.    Helgarkveðja, Frosti ofurtannburstari.  </description>
Halló allir!
      <description>    Ég og Ólína stóra frænka mín,sem var alveg rosalega dugleg að passa mig    Af mér er allt gott að frétta. Fór í skoðun í gær og sprautu. Ég er orðin 10 kíló og 150 grömm og heilir 70 cm! Stór strákur.  Svo er komin upp ein lítil tönnsla! Mamma fann hana á föstudagskvöld og nú verður hún sko að gefa mér tannfé..jei!  Það var rosalega gaman á Ólafsfirði eins og þið getið séð á myndunum.  Gaman að hitta allt fólkið og fara í gönguferðir í bænum. Við mamma og  pabbi erum sko alveg sammála um að fara aftur sem fyrst og að gera  blúshátíðarferð að árlegri uppákomu hjá okkur. Við viljum bara þakka  Guðnýju stórfrænku og Ægi fyrir allt saman og auðvitað Ásdísi Maríu  fyrir að lána okkur herbergið sitt. Knús til ykkar allra!   </description>
Komið nýtt myndaalbúm!!!
Afmæliskall
      <description>    Halló allir!    Í dag á ég afmæli. Ég er orðinn svo rosalega stór, alveg 5 mánaða í  dag. Ég ætla að eyða deginum í að syngja afmælissönginn minn, bæði í  Jórufellinu og líka í Suðurásnum. Svo fæ ég vonandi eitthvað gott að  borða á afmælisdaginn, búinn að fá graut og fæ vonandi banana eða  bananamauk í kvöld. Maður verður nú að leyfa sér eitthvað á  afmælisdaginn sinn.    Á morgun ætlum við svo í laaaangan bíltúr, alla leið norður í  Eyjafjörð. Ég ætla að heimsækja ættingja bæði á Akureyri og Ólafsfirði.  Það verður gaman.    Munið svo að skoða myndirnar mínar og segja hvað ykkur finnst.    Kveðja,  Frosti  </description>
Halló halló
      <description>    Úlfur og Frosti sætir saman    Það er sko margt búið að vera í gangi hjá mér síðustu daga. Við mamma  og pabbi fórum upp í sveit og vorum í viku. Það var rosalega gaman. Ég  fékk að leika við strákana og skoða hundana á bænum. Svo voru auðvitað  allir að knúsa mig,enda er ég svo knúsulegur. Mamma var síðan að vinna  og á meðan brölluðum við pabbi ýmislegt saman. Við fylgjumst auðvitað  með HM og svona, og er ég mjög áhugasamur um boltann, enda er svo margt  að gerast og flottir litir á vellinum.  Eins og þið sjáið á myndinni er ég orðinn svo stór! Það eru 15 mánuðir  á milli okkar Úlfs en ég virðist ætla að stefna á að ná honum sem  fyrst. Mamma er ekki alveg að ná þessu,litla barnið hennar bara stækkar  og stækkar! Enda er ég svo duglegur að borða.   Það er komið inn nýtt albúm með alveg fullt af myndum, eitthvað um 200  stykki..mamma og pabbi virðast ekki vera að róast í myndabrjálæðinu   Nú er pabbi kominn í mánaðarfrí og við ætlum sko að hafa það gott litla  fjölskyldan. Í næstu viku ætlum við svo að fara norður til  Ólafsfjarðar. Það verður nú gaman, fullt af skemmtilegu fólki og svona.  Verið svo endilega í bandi, við ætlum að vera dugleg að rölta niður í  bæ þegar það er gott veður, þannig að ef þið viljið koma með í ísferð á  Austurvöll þá látið þið bara heyra í ykkur.    Kveðja, Frosti stóri strákur.  </description>
Nýjar myndir
      <description>    Hæ! Það eru komnar inn nýjar myndir. Meiri fréttir fljótlega.    Kveðja, Frosti.  </description>
4 mánaða kútur
      <description>    Jæja, þá er maður bara orðinn 4 mánaða..tíminn flýgur áfram!    Af mér er allt gott að frétta. Ég er loksins að sættast við að vera í  vagninum mínum, ef ég fæ að sitja uppi og horfa í kringum mig. Ég er  líka svo forvitinn, það er margt að sjá þegar maður er svona lítill.  Svo er ég farinn að fá aðeins fjölbreyttari mat, fleiri tegundir af  grautum, stappaðan banana og epla/mangó mauk. Mér finnst þetta allt  saman hrikalega gott, enda er ég matargat og stækka eftir því.  Ég sef eiginlega allar nætur, þvílíkt draumabarn! Um daginn svaf ég 15  tíma, frá 18-9! Mömmu var nú bara hætt að lítast á þetta, en ætli ég  hafi ekki bara verið að taka vaxtarkipp. Þá þarf maður nú að safna orku  sko! Þið getið ímyndað ykkur hvort ég var ekki svangur og þyrstur eftir  þann dúr!  Svo ætlum við fjölskyldan að fara norður í byrjun júli, á Ólafsfjörð og  Akureyri. Það verður sko gaman, því þar á ég tvær langömmur og fullt af  öðrum skemmtilegum ættingjum. Mamma og pabbi ætla að nota tækifærið og  kíkja á blúshátíðina á Ólafsfirði, en ætli ég bíði ekki með það í  nokkur ár í viðbót   Það er annars komið inn nýtt albúm,stútfullt af krúttmyndum.  Segjum þetta gott í bili, bið að heilsa ykkur!    Kveðja, Frosti bestabarn.  </description>
Smá Frostafréttir
      <description>    Ég er eldhress að vanda. Duglegur að drekka,borða,sofa og vera  krúttulegur. Mamma er búin að vera að reyna að fara út með mig í  vagninn en ég hef nú alls ekki verið ánægður með það. Hef bara staðið á  orginu þangað til ég var tekinn upp. En mamma gerði enn eina tilraun í  kvöld og það gekk nokkuð vel. Ég grét eiginlega ekki neitt,horfði bara  forvitinn í kringum mig og dottaði svo aðeins. Mamma vonast til að ég  fari að vera auðveldari úti í þessum vagni,það er svo gaman að fara  aðeins út og svona. Ekkert stuð að hanga alltaf inni.  Ég verð 4 mánaða eftir nokkra daga. Þetta er svo fljótt að líða! Ég er  farin að bera mig til við að snúa mér, mamma heldur að það komi bara á  næstu dögum jafnvel. Svo eru tennurnar farnar að pirra mig dálítið,  fyrstu tvær eru aaalveg að koma upp! Því fylgir náttúrulega kláði og  pirringur, en ég naga bara allt sem fyrir verður :) Ég er samt svo  góður strákur að ég brosi oftast bara og hlæ mikið. Uppáhalds lagið  mitt er afi minn og amma mín, sem passar alveg því ég á svo góðar ömmur  og afa.Það er komið nýtt albúm með obboslega krúttlegum myndum að vanda. Heyrumst svo bara hress!    Kveðja, Frosti ofurkrútt.  </description>
Hæ!
      <description>    Þá er ég orðinn 15 vikna stór strákur. Ég fór í vigtun og sprautu um  daginn og er kominn yfir átta kílóin í þyngd! Ég var rosa duglegur, fór  ekkert að gráta þegar læknirinn sprautaði mig. En mér fannst ekki gaman  þegar hann kíkti í eyrun mín.  Á morgun ætla ég í Eurovision grillpartý upp í Suðurás til ömmu Ólafar  og afa Matta. Svo ætla þau að passa mig meðan mamma og pabbi kíkja í  bæinn. Það verður sko stuð, þau eru svo skemmtileg.  Í tilefni af Eurovisionhelginni er komið inn nýtt albúm með fullt fullt af flottum myndum.  Og veriði svo dugleg að kommenta þarna!!    Kveðja, Frosti.  </description>
Nýjar myndir og fullt af fjöri
      <description>    Hæhó!    Ég er alveg ótrúlega hress. Það voru líka að koma inn nýjar myndir og  það er svo gaman. Svo var ég líka í sturtu áðan, það er sko hressandi.    Á morgun fer ég í ungbarnaeftirlit og á að fá sprautu. Það er ekki  hresst en ég verð örugglega duglegur af því ég er orðinn svo stór.    Látið endilega heyra í ykkur.    Kveðja,  Frosti  </description>
3 mánaða gutti
      <description>  Jæja,þá er ég bara orðinn 3 mánaða. Ég held bara áfram að stækka á  hraða ljóssins, mamma og pabbi sjá nánast dagamun á mér. Enda er ég  duglegur að drekka. Svo fékk ég ávaxtamauk í fyrsta skipti í dag og  nammi namm,það var sko gott. Smjattaði út í eitt.  Við mamma fórum í sveitina með ömmu og afa. Þau pössuðu mig á meðan  mamma vann á hótelinu. Það var rosa gaman í sveitasælunni,langt síðan  við hittum allt skemmtilega fólkið síðast. En mamma saknaði mín reyndar  alveg  hrikalega meðan hún var að vinna, þó við værum nú í sömu byggingunni.  Pabbi var fyrir norðan á  meðan og við mamma urðum voða glöð að fá hann heim aftur.  Annars verð ég bara sætari og skemmtilegri með hverjum deginum. Mamma og pabbi vita bara ekki hvar þetta endar ;)   Í tilefni dagsins er komið inn nýtt myndaalbúm.    Afmæliskveðja frá Frosta   </description>